Um HD samtökin á Íslandi
HD samtökin á Íslandi voru stofnuð þann 10. nóvember 2021.
Tilgangur HD samtakanna er að vinna að auknum lífsgæðum og velferð þeirra sem haldnir eru Huntington sjúkdómnum með því að veita þeim og aðstandendum þeirra stuðning og stuðla að öflugri félags- og fræðslustarfsemi. Samtökin eru málsvari félagsmanna gagnvart hinu opinbera og öðrum aðilum.
HD (e. Huntington's disease).

Stjórn
Núverandi stjórn HD samtakanna var kosin á stofnfundi þann 10. nóvember 2021.
Stjórnin er skipuð þremur til átta félagsmönnum. Formaður skal kosinn árlega en aðrir stjórnarmenn skulu kosnir til tveggja ára í senn. Tveir varamenn eru kosnir til eins árs. Stjórnin skiptir sjálf með sér verkum.
-
Sveinn Viðar Guðmundsson, formaður
-
Jóhann Tómas Sigurðsson, varaformaður
-
Birna Bjarnadóttir, gjaldkeri
-
Margrét Sigurðardóttir, ritari
-
Benedikt Ingi Tómasson, meðstjórnandi
-
Steingrímur Sævarr Ólafsson, meðstjórnandi
Varastjórn
-
Sóley Bæringsdóttir