Lög HD-Samtakanna á Íslandi
1. grein
Nafn félagsins er HD-Samtökin á Íslandi og starfar í samræmi við lög nr. 110/2021 um félög til almannaheilla. Heimili þess og varnarþing er í Reykjavík.
HD-Samtökin á Íslandi geta átt aðild að samtökum, innlendum eða erlendum samkvæmt tillögu stjórnar og þarf slík tillaga að hljóta samþykki aðalfundar til að öðlast gildi.
2. grein
Markmið félagsins er að vinna að auknum lífsgæðum og velferð þeirra sem haldnir eru Huntington (HD) sjúkdómnum og HD-erfðagreindra, með því að veita þeim og aðstandendum þeirra stuðning og stuðla að öflugri félags- og fræðslustarsemi. Félagið er málsvari félagsmanna gagnvart hinu opinbera og öðrum aðilum.
Samtökin munu m.a.:
-
Standa vörð um réttindi félagsmanna og hagsmuni þeirra.
-
Stunda fræðslu og kynningastarfsemi um málefni félagsmanna og fjölskyldna þeirra.
-
Stuðla að rannsóknum og aukinni þekkingu á sjúkdómnum og möguleikum á greiningu og meðferð við honum.
-
Stuðla að samræmingu samskipta á milli sjúklinga, aðstandenda, stuðningsaðila og heilbrigðisstarfsfólks.
-
Vera vettvangur fyrir HD-sjúka, HD-erfðagreindra, og aðstandendur.
-
Fjármunum félagsins skal ráðstafað til að ná framangreindum markmiðum félagsins, s.s. með styrkjum, stuðningi og með þeim öðrum hætti til að styðja við starfsemi og markmið félagsins.
3. grein
Félagar geta verið fólk með HD-sjúkdóminn, HD-erfðagreindir, aðstandendur og aðrir sem áhuga hafa á málefnum félagsins.
4. grein
Félagið aflar tekna með árgjöldum félagsmanna, gjöfum og styrkjum sem því kann að áskotnast. Ákvörðun um árgjald og upphæð árgjalds skal tekin á aðalfundi.
Félagsmenn bera ekki persónulega ábyrgð á skuldum eða öðrum skuldbindingum félagsins nema með félagsgjaldi sínu.
5. grein
Aðalfundur fer með æðsta vald í málefnum félagsins og skal hann haldinn eigi síðar en í nóvember ár hvert. Aðalfundur er löglegur sé til hans boðað með auglýsingu á vefsíðu eða öðrum samskiptamiðlum með í það minnsta tveggja vikna fyrirvara og skal dagskrá aðalfundar tilgreind í fundarboði. Framboð til stjórnar og nefnda skal tilkynna til skrifstofu eigi síðar en viku fyrir aðalfund nema annað sé ákveðið af stjórn félagsins. Atkvæðisrétt á aðalfundi hafa þeir sem eru skráðir í félagið eigi síðar en viku fyrir aðalfund og hafa greitt árgjald til félagsins. Hver atkvæðisbær félagsmaður hefur eitt atkvæði og ræður afl atkvæða úrslitum mála, nema annars sé getið í lögum félagsins.
6. grein
Á aðalfundi skulu þessi mál tekin til meðferðar:
a) Kosning fundarstjóra og fundarritara.
b) Skýrsla stjórnar.
c) Ársreikningar félagsins lagðir fram.
d) Umræður og afgreiðsla á skýrslu stjórnar og ársreikningum.
e) Upphæð árgjalds ákveðin.
f) Lagabreytingar
g) Kosning stjórnar, og minnst einn varastjórnarmann.
h) Kosning endurskoðanda
i) Kosning nefnda
j) Önnur mál.
7. grein
Boða skal til aukaaðalfundar svo fljótt sem auðið er ef meirihluti stjórnar eða a.m.k. fjórðungur félagsmanna fer fram á það skriflega og leggur fram tillögu að dagskrá.
8. grein
Lögum félagsins má breyta á aðalfundi eða aukaaðalfundi með samþykki 2/3 hluta atkvæða sem farið er með á fundinum. Tillögur til lagabreytinga skulu kynntar í fundarboði.
9. grein
Stjórn félagsins skipa 3-8 menn og heimilt er að kjósa allt að 2 til vara; formaður, varaformaður, ritari, gjaldkeri, meðstjórnandi og allt að tveir varamenn. Allir stjórnarmenn eru kosnir til tveggja ára. Firmaritun er í höndum meirihluta stjórnar.
Stjórnin skiptir með sér verkum, kýs sér varaformann, gjaldkera, og ritara.
10. grein
Stjórnarseta skal ekki vara lengur en 8 ár samfleytt og verða menn kjörgengir á ný að ári. Fyrri stjórnarseta skerðir ekki formannstíð. Formaður skal að jafnaði ekki sitja lengur en 8 ár.
Aðalfundi einum er heimilt að ákveða hvort greiða skuli stjórnarlaun.
11. grein
Stjórnin ræður málefnum félagsins milli aðalfunda. Hún tekur nánari ákvarðanir um starfsemi þess þ.m.t. ráðningu framkvæmdastjóra og ber ábyrgð á fjárreiðum. Á grundvelli bókaðra samþykkta á stjórnarfundi getur hún skuldbundið félagið gagnvart öðrum aðilum og er undirskrift formanns og gjaldkera nægileg til þess. Stjórnin getur þó veitt einum eða fleirum sameiginlega prókúru fyrir félagið. Til meiriháttar ákvarðanatöku, svo sem kaup, byggingu eða sölu fasteigna, skal ávallt boða til félagsfundar og skal til hans boðað á sama hátt og til aðalfundar. Ræður afl atkvæða úrslitum á slíkum fundum.
12. grein
Formaður boðar til stjórnarfunda, sem halda skal svo oft sem þurfa þykir. Stjórnarfund skal einnig halda ef í það minnsta tveir stjórnarmenn krefjast þess. Stjórnarfundur er löglegur og ályktunarbær ef þrír stjórnarmenn eða varastjórnarmenn sækja fundinn hið fæsta. Afl atkvæða ræður úrslitum á stjórnarfundum. Gerðir stjórnarinnar skulu bókfærðar.
13. grein
Reikningsár félagsins er almanaksárið. Reikningarnir skulu skoðaðir af endurskoðanda sem aðalfundur kýs.
14. grein
Komi fram tillaga um slit félagsins skal farið með hana eins og lagabreytingatillögu. Þó fæst hún eigi afgreidd nema a.m.k. fimmtungur félagsmanna mæti til aðalfundar. Ef ekki næst tilskilin fundarsókn skal boða til framhaldsaðalfundar um tillöguna innan mánaðar. Sá fundur getur afgreitt tillöguna án tillits til fjölda fundarmanna. Verði félagið lagt niður skal á sama fundi ráðstafa eignum þess í samræmi við tilgang félagsins.
15. grein
Þar sem ákvæði þessa samþykkta segja ekki til um hvernig með skuli farið skal hlíta ákvæðum laga nr. 110/2021 um félög til almannaheilla, svo og öðrum lagaákvæðum er við geta átt.
Þessi lög voru þannig samþykkt á fundi HD-Samtakanna 10.11.2021.
